Ég heiti Hólmgrímur Helgason
og er fæddur á Húsavík 30.desember 1966.
Ég er næst yngstur af sjö systkinum sem eru: Inga
Rósa, Palli, Svanhvít, Elfa, Soffía, ÉG
og svo Helga Dóra litla.
Foreldrar mínir eru: Helgi Sigurður Pálsson (látinn)
og Halldóra Hólmgrímsdóttir, búsett
á Húsavík.
Ég hef fengist við mörg störf um ævina, þó
lengst af við sjómennsku, m.a. um áratuga skeið
hjá Langanesi h/f
á Húsavík.
Árið 1999 ákváðum ég og "konan"
mín, Sigurrós Tryggvadóttir að nú væri
tími til kominn að breyta til. Íbúðin okkar
á Húsavík var sett í leigu og við fluttum
til Danmerkur, nánar tiltekið til S¢nderborgar á
Suður Jótlandi, þar sem ég skráði
mig í undirbúningsnám fyrir tæknifræði.
Þetta nám er nokkurs konar stúdentspróf,
tekið á einu ári og er góður undirbúiningur
fyrir áframhaldandi nám. Ætlunin var svo að
fara í eitthvað nám varðandi tölvur og endaði
ég á því að velja Datamatiker sem útleggst
sem Tölvu- / kerfisfræðingur. Ég útskrifaðist
svo frá Handelsskólanum
í S¢nderborg í lok nóvember 2002.
|