Sporðdrekinn (23 okt.- 21 nóv.)

Barn í Sporðdrekanum Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann. |
Sporðdreki - 'Valdamaður' á braut sálræns þroska Sporðdrekinn er næmur tilfinningamaður. Hann er dulur í skapi og frekar varkár. Í framkomu er hann oft rólegur og yfirvegaður, þó að undir niðri ólgi sterkar tilfinningar. Sporðdrekinn á til að vera yfirþyrmandi, stjórnsamur og skapstór. Hann er fastur fyrir og ósveigjanlegur þegar grunnhugmyndir hans eru annars vegar. Hann er oft öfgafullur eða er a.m.k. ekki maður hálfvelgjunnar. Sporðdrekinn hefur hæfileika til að rannsaka og kryfja mál til mergjar. Hann er oft ágætur mannþekkjari og skynjar innri líðan fólks og sér í gegnum yfirborðsmennsku. Vegna næmleika síns þarf hann að draga sig annað slagið í hlé. Viss einvera er honum því nauðsynleg. Sporðdrekinn hefur sterkt ímyndunarafl og á til að magna sig upp, gera úlfalda úr mýflugi og rífa sjálfan sig og aðra niður eða búa til aukaorku þegar á þarf að halda. Stjórnunarhæfileikar, hreinskilni, seigla og úthald eru meðal eiginleika hans.
|
Sporðdrekar eru oftast grannir, með hvöss og djúp augu og þungar augabrýr. Þeir eru yfirleitt afar kynþokkafullir og klæða sig líka þannig, gjarnan í flegnar blússur eða svört leðurföt. Sporðdreki er vatnsmerki og tengist djúpum tilfinningum, yfirleitt þeim sem snerta kynlíf og sjálfsbjargarhvöt. Það er oft sagt, að Sporðdrekinn sé misskildasta merki dýrahringsins, og flestum þykir fólk fætt í því merki leyndardómsfullt og spennandi. Undir heilsteyptu ytra borði Sporðdrekans leynist oft gríðarleg tilfinningaólga, afbrýðisemi og ástríða, og fólk í þessu merki reynir af fremsta megni að skapa sér tilfinningalegt öryggi í heimi sem því finnst fjandsamlegur. Sporðdrekar hafa mjög næma eðlisávísun og fæstir geta farið á bak við þá, og þeir hafa oftast mikinn áhuga á yfirskilvitlegum efnum.Þeir eru hefnigjarnir en einbeittir og þolgóðir og gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Sporðdrekar væru framúrskarandi byltingarmenn, einkum af öfgakenndara taginu, en þeir kasta sér reyndar af ástríðu út í hverja þá vinnu sem vekur áhuga þeirra og kitlar ímyndunaraflið. Í íþróttum velja þeir sér iðulega eitthvað sem hætta fylgir (eða gæti fylgt), t.d. skylmingar, karate og teygjuhopp, en þeir hafa líka yndi af dansi og tónlist. Til að öðlast lífshamingju, þarf Sporðdrekinn að reyna að sigrast á innri ótta sínum og sálarkvölum, sem þeir eiga erfiðara með að leiða hjá sér en aðrir. |