Ath.: Þessi vafri styður ekki fyllilega
CSS-stílsnið (stylesheets), sem notuð eru til að stjórna útliti síðunnar.
[
Vafrar sem mælt er
með | Beint í
meginmál ]

Mikið vatnsveður var á stærstum hluta Sjálands í Danmörku í dag en að sögn lögreglu og björgunarþjónustu landsins hlaust ekki alvarlegt tjón af. Dæla þurfti vatni úr á annað hundrað kjöllurum húsa í Kaupmannahöfn og víðar á Sjálandi og einnig á Lálandi og Falstri. Þá flæddi sumstaðar yfir vegi.
Herskáir Palestínumenn hafa sleppt palestínska leyniþjónustumanninum Jihad Abed úr haldi en honum var rænt í Gasaborg á fimmtudag og í kjölfar þess rændu ættingjar hans tveimur starfsmönnum alþjóðastofnana til að leggja áherslu á kröfu sína um að honum yrði sleppt. Mannræningjarnir, sem áður höfðu sakað Abed um spillingu, sögðust hafa sleppt Abed þar sem yfirheyrslum yfir honum hefði verið lokið.
Skipaður lögmaður Osman Hussains, sem talinn er hafa verið einn tilræðismannanna í misheppnuðu hryðjuverkaárásunum í Lundúnum þann 21. júlí, gaf til kynna í dag að skjólstæðingur sinn myndi berjast gegn því að verða framseldur frá Ítalíu til Bretlands en framsalsferlið hófst á Ítalíu í dag með yfirheyrslum yfir Hussain.
Yfirvöld í Úsbekistan hafa sent bandarískum yfirvöldum skilaboð þar sem þeim er veittur sex mánaða frestur til að flytja starfsemi Bandaríkjahers frá Karshi-Khanabad herstöðinni í landinu en herstöðin gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi Bandaríkjahers í Afganistan. Talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins segir yfirvöld vera að kanna málið og grafast fyrir um það hvað „skilaboðin tákni nákvæmlega.” Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Yfirvöld á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum segjast geta komið í veg fyrir að herskáir Palestínumenn grípi til aðgerða á meðan á brottflutningi Ísraela frá Gasasvæðinu og fjórum landnemabyggðum á norðanverðum Vesturbakkanum sendur þrátt fyrir að öryggissveitir þeirra séu illa þjálfaðar og illa vopnum búnar.
Flugvél SAS flugfélagsins á leið til Parísar frá stokkhólmi var rýnd skömmu fyrir flugtak í morgun eftir að farþegi, sem krafðist þess skyndilega að fá að yfirgefa flugvélina, skildi farsíma eftir í sæti sínu. Lögreglumenn rannsökuðu síðan farsímann en komust að þeirri niðurstöðu að hann væri ekki hættulegur.
Franco Frattini, sem fer með dómsmál innan Evrópusambandsins, varar við því í blaðaviðtali sem birt er í franska blaðinu Le Monde í dag að hætta sé á því að fjöldi hryðjuverkamanna sem nú haldi til í Írak snúi til baka til heimalanda sinna í Evrópu eftir að jafnvægi kemst á í Írak. Þá sagði hann Írak þjóna sem þjálfunarbúðir fyrir hryðjuverkamenn, sem margir hverjir eigi sér athvarf í Evrópu.
Írsk kona vann í gærkvöldi stærsta lottópott sem í boði hefur verið í Evrópu, 112 milljónir evra eða jafnvirði 8,8 milljarða króna. Konan, sem heitir Dolores McNamara og er frá Garryowen í Limericksýslu, keypti lottómiðann í krá á föstudagskvöld og hreppti fyrsta vinning sem hafði ekki gengið út í níu síðustu skipti.
Tveir menn voru handteknir með vísan í lög gegn hryðjuverkum í Leicester í Bretlandi snemma í morgun. Lögregla segir málið þó ekki tengjast hryðjuverkaárásunum í Lundúnum fyrr í þessum mánuði með beinum hætti. Húsleit stendur enn yfir þar sem mennirnir voru handteknir og hafa nágrannar þeirra verið varaðir við óþægindum vegna aðgerða lögreglu á svæðinu. Þeir hafa þó einnig verið fullvissaðir um að þeim stafi engin hætta af aðgerðunum. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Óþekktur maður réðst á Saddam Hussein, fyrrum Íraksforseta, er hann kom fyrir dómara sérstaks dómstóls sem fjallar um mál hans í Bagdad, höfuðborg Íraks í gær, samkvæmt upplýsingum lögmanna hans en lögmennirnir hafa ítrekað lýst áhyggjum af því að hvorki Saddam né verjendur hans séu óhultir í Írak. Talsmaður Bandaríkjahers neitaði því hins vegar í dag slíkt atvik hefði átt sér stað,
Lögregla í Bretlandi segir enn mikla hættu á hryðjuverkum í landinu þrátt fyrir að fjórir grunaðir tilræðismenn í misheppnuðum sprengjutilræðum í Lundúnum þann 21. júlí hafi verið handteknir. Lögregla hefur því hvatt almenning til að vera áfram vel á verði og láta lögreglu vita af öllu grunsamlegu. Enn er verið að yfirheyra þrjá grunaða tilræðismenn menn sem handteknir hafa verið í Bretlandi og til stendur að farið verði fram á að fjórði maðurinn, sem var handtekinn á Ítalíu, verði framseldur.
Innanríkisráðherra Ítalíu segir Osman Hussain, sem handtekinn var í landinu í gær grunaður er aðild að hryðjuverkunum í Lundúnum þann 21. júlí, sýna lögreglu samstarfsvilja og að hann hafi svarað spurningum við yfirheyrslur í morgun. Þá sagði hann manninn hafa yfirgefið Lundúnir með EuroStar lestinni sem fór frá Waterloo lestarstöðinni þann 26. júlí.
Tveir breskir öryggisverðir létu lífið og tvö írösk börn særðust í sprengjutilræði við bílalest breskra sendiráðsmanna í borginni Basra í suðurhluta Íraks í morgun. Slíkar árásir eru fremur sjaldgæfar í nágrenni Basra. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Meirihluti Norðmanna segist munu samþykkja hömlur á tjáningar- og ritfrelsi í landinu svo öfgahópar á borð við ný-nasista hætti áróðri sínum. Þá lýsa þeir yfir stuðningi við banni á fjöldasamkomum kynþáttahatara, sem og kristinna og múslímskra öfgahópa. Þetta kemur fram í skýrslur Gallup í Noregi, sem gerð var síðastliðið haust en var gerð opinber fyrir skömmu.
Sheikh Mohammed Sayed Tantawi, æðsti klerkur súnní-múslíma í Egyptalandi, leiddi göngu nokkuð hundruð manna við ferðamannastaðinn Sharm el-Sheikh í Egyptalandi í dag þar sem hryðjuverkunum um síðustu helgi var mótmælt. „Íslamstrú boðar umburðarlyndi og miskunnsemi… trúin líður enga glæpi hvaða nafni sem þeir nefnast. Ódæðismennirnir sem frömdu hryðjuverkin eru glæpamenn og spilltar sálir,“ sagði Sheikh Tantawi í prédikun að göngu lokinni.
Bandarísk Apache árásarherþyrla hrapaði til jarðar á æfingasvæði hersins skammt utan við Bagram Airfield, bandaríska herstöð í norðanverðri Kabúl í Afganistan, í dag. Tveir úr áhöfn slösuðust.
Allt flug einkaflugvéla verður bannað yfir Berlín í Þýskalandi frá og með næsta mánudegi. Í síðustu viku skall lítil einkaflugvél niður á grasblett á milli skrifstofu kanslarans og þinghússins. Lögreglan í Þýskalandi telur að flugmaðurinn hafi verið í sjálfsmorðshugleiðingum og flogið vélinni niður á jörðina af ráðnum hug.
Lögregla á Spáni segir að tvær litlar sprengjur hafa sprungið á þjóðvegum í norðurhluta landsins í dag eftir að viðvaranir bárust frá ETA aðskilnaðarsamtökum Baska. Ekki er talið að neinn hafi sakað í sprengingunum.
Giuseppe Pisanu, innanríkisráðherra Ítalíu, segir að Osman Hussain, sem talinn er hafa verið einn tilræðismannanna í misheppnuðu sprengjutilræðunum í Lundúnum í síðustu viku, hafi verið handtekinn í Róm í dag. Lögregla í Bretlandi handtók fyrr í dag tvo menn, sem taldir eru hafa tekið þátt í tilræðunum en fjórði maðurinn var handtekinn í Bretlandi fyrir nokkrum dögum.
Tæplega 16.000 manns voru án atvinnu í Danmörku í síðasta mánuði. Atvinnuleysi fór niður um eitt prósentustig á milli maí og júní og mælist það nú 5,8%. Atvinnuleysi hefur ekki verið jafn lítið í landinu síðan í febrúar árið 2003.
Breska lögreglan Scotland Yard segir handtökurnar í Lundúnum í dag vera mikilvægan áfanga í rannsókn hryðjuverkaárásanna í borginni þann 21. júlí og að þær geri daginn í dag að besta degi lögreglunnar frá 21. júlí. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í dag að 11 herstöðvum í Þýskalandi verði lokað í október árið 2007. Er þetta í samræmi við áætlanir ráðuneytisins um að skera niður herafla Bandaríkjamanna í landinu.
Pervez Musharraf, forseti Pakistans, hefur fyrirskipað öllum útlendingum sem leggja stund á Kóraninn í trúarskólum í landinu að hafa sig á brott. Um 1.400 útlendingar eru við nám í skólunum víða um landið.
Tveimur starfsmönnum alþjóðlegra samtaka var rænt á Gasasvæðinu í dag en þeir síðan látnir lausir nokkrum klukkutímum síðar. Hópur sem tengist fjölskyldu palestínska leyniþjónustumannsins Jihad Abed, sem rænt var á Gasasvæðinu í gær, rændi fólkinu og hótaði að láta það ekki laust fyrr en Abed væri kominn fram. Þetta kemur fram á fréttavef Ha'aretz.
Áróðursstríðið, sem háð er milli Dana og Kanadamanna um Hans Ø, óbyggða smáeyju mitt á milli Grænlands og Kanada, hefur til þessa farið fram innan stjórnkerfa landanna en virðist nú hafa færst út og nýjum vopnum, þar á meðal nýjustu auglýsingatækni á netinu, er nú beitt.
Konum hefur verið bannað vera berar að ofan á ítölskum ströndum nema þær liggi. Samkvæmt nýjum reglum verða konur að hylja sig þegar þær ganga um, baða sig í sjónum og spila blak.
Listasafn í Vín í Austurríki hefur tilkynnt að þeir sem mæta naktir á safnið þurfi ekki að greiða aðgangseyri. Er þessi stefna hluti af kynningarherferð fyrir nýjustu sýninguna í safninu sem ber heitið The Naked Truth eða Nakti sannleikurinn.
Króatískur bóndi lét lífið þegar kýr sem hann var að fara að mjólka hrasaði og kramdi hann til dauða. Bóndinn sem er 61 árs og frá þorpinu Cadjavacki Lug fór inn í fjósið sitt þar sem hann og fjölskylda hans hafa níu kýr, eins og hann hafði gert á hverjum morgni síðustu 20 árin.
Breskur pípari hefur verið sektaður um andvirði rúmlega 400 þúsund íslenskra króna og dæmdur til 150 stunda samfélagsþjónustu eftir að hann varð uppvís að því að kasta af sér vatni í vasa á heimili viðskiptavinar síns og hella því síðan í heitavatnstank heimilisins. Vasann skolaði hann síðan í tanki með drykkjarvatni heimilsins.
Ítalskt par hafði jafnvirði fjögurra milljóna króna út úr konu nokkurri með því að sannfæra hana um að þau væru vampírur sem myndu sjá til þess að hún eignaðist barn með Kölska ef hún borgaði þeim ekki.
Tíu ára gamall drengur olli miklu uppnámi í banka í suðurhluta Póllands þegar hann hótaði að sprengja bankann í loft upp. Í ljós kom að hann var óánægður með þjónustuna í bankanum sem honum þótti heldur hæg.
Gárungar í Bretlandi sega, að búið sé að upplýsa hvernig Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fer að því að viðhalda litarafti sínu en Blair þykir jafnan sólbrúnn og hraustlegur.
Slóð:
http://www.mbl.is//mm/frettir/erlent/index.html?refresh=1
Skoðað: 2005-07-30
23:24
© mbl.is/Árvakur hf
© mbl.is/Árvakur hf, 2005