Ath.: Þessi vafri styður ekki fyllilega
CSS-stílsnið (stylesheets), sem notuð eru til að stjórna útliti síðunnar.
[
Vafrar sem mælt er með |
Beint í meginmál ]

Frá Neistafluginu í Neskaupstað.
mbl.is/Ágúst Blöndal
Mikið vatnsveður var á stærstum hluta Sjálands í Danmörku í dag en að sögn lögreglu og björgunarþjónustu landsins hlaust ekki alvarlegt tjón af. Dæla þurfti vatni úr á annað hundrað kjöllurum húsa í Kaupmannahöfn og víðar á Sjálandi og einnig á Lálandi og Falstri. Þá flæddi sumstaðar yfir vegi.
Herskáir Palestínumenn hafa sleppt palestínska leyniþjónustumanninum Jihad Abed úr haldi en honum var rænt í Gasaborg á fimmtudag og í kjölfar þess rændu ættingjar hans tveimur starfsmönnum alþjóðastofnana til að leggja áherslu á kröfu sína um að honum yrði sleppt. Mannræningjarnir, sem áður höfðu sakað Abed um spillingu, sögðust hafa sleppt Abed þar sem yfirheyrslum yfir honum hefði verið lokið.
Einn var með allar lottótölurnar réttar í kvöld og fékk 6,6 milljónir króna að launum. Einn var með fjórar tölur réttar auk bónustölu og fær 340 þúsund krónur. Lottótölurnar voru 6, 10, 22, 34 og 38 og bónustalan var 1. Jókertölurnar voru 0 - 4 - 7 - 7 - 6.
Skipaður lögmaður Osman Hussains, sem talinn er hafa verið einn tilræðismannanna í misheppnuðu hryðjuverkaárásunum í Lundúnum þann 21. júlí, gaf til kynna í dag að skjólstæðingur sinn myndi berjast gegn því að verða framseldur frá Ítalíu til Bretlands en framsalsferlið hófst á Ítalíu í dag með yfirheyrslum yfir Hussain.
Bílvelta varð í nágrenni Súðavíkur um klukkan hálf fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Ísafirði voru tveir erlendir ferðamenn í bílnum og voru þeir fluttir á súkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar. Nánari upplýsingar um líðan þeirra liggja ekki fyrir en fólkið er þó ekki talið mjög alvarlega slasað.
Æskuást leikkonunnar Jennifer Aniston hefur hætt við að selja minjagripi sína um samband þeirra á uppboði á Netinu eftir að aðstoðarmaður hennar kom því á framfæri við hann að uppboðið væri henni á móti skapi. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Tekjur ríkissjóðs af eignaskatti námu alls 2,8 milljörðum króna og hækkuðu um 30% á milli ára. Þetta skýrist einkum af hækkun á fasteignamati. Gjaldendum eignarskattsins fjölgaði um 8,8% og voru þeir 75.600.
Fernando Alonso hjá Renault, sem hefur forystu í stigakeppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra, segist myndu glaður una því ef Michael Schumacher hjá Ferrari vinnur ungverska kappaksturinn á morgun. „Ég verð mjög ánægður ef Michael vinnur,“ segir hann.
Tveir geimfarar fóru í geimgöngu í morgun og prófuðu viðgerðartækni, sem þróuð var eftir að geimferjan Kólumbía fórst fyrir rúmum tveimur árum. „Þvílíkt útsýni," hrópaði Soichi Noguchi þegar hann kom út úr geimferjunni Discovery, sem þá var í 357 km hæð yfir Mið-Asíu. Noguchi og Stephen Robinson þurftu að æfa sig í um klukkutíma eftir að þeir komu út úr ferjunni og gátu hafið verk sitt.
|
14°
| ||
| Akureyri | 14° | |
| Egilsst. | 8° | |
| London | 16° | |
| K.höfn | 16° | |
| New York | 28° | |
| Velja
borgir | ||
| USD | 64.80 |
| EUR | 78.42 |
| GBP | 113.83 |
| CAD | 52.75 |
| DKK | 10.51 |
Vogin finnur fyrir sífellt sterkari hvöt til þess að vera hluti af einhverju æðra. Hún þráir að láta til sín taka í heiminum og koma góðu til leiðar.
| Lottó 30.7.2005 | |||||
| 6 | 10 | 22 | 34 | 38 | 1 |
| Jóker | |||||
| 0 | 4 | 7 | 7 | 6 | |
| Áskrift á http://www.lotto.is/ | |||||
| Birt án ábyrgðar | |||||
Slóð: http://www.mbl.is//mm/frettir/index.html
Skoðað:
2005-07-30 23:21
© mbl.is/Árvakur hf
© mbl.is/Árvakur hf, 2005