Ath.: Þessi vafri styður ekki fyllilega CSS-stílsnið (stylesheets), sem notuð eru til að stjórna útliti síðunnar.
[ Vafrar sem mælt er með | Beint í meginmál ]

Laugardagur | 30. júlí | 2005
Prenthaus
Letur: Lítið letur (venjulegt) Stærra letur Enn stærra letur
Breidd: Minni skjábreidd Venjuleg skjábreidd Meiri skjábreidd

Leit

Nýtt á mbl.is

Helstu mál

Miðillinn mbl.is

Þjónusta mbl.is

Vefmiðlar

Morgunblaðið

Forsíða blaðsins

Fyrir áskrifendur
Blað dagsins - PDF-útgáfa

Annað efni

Úr Morgunblaðinu
Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 19:57

EM í skák: Íslensku liðin töpuðu í fyrstu umferð

Bæði karla- og kvennaliðin í skák töpuðu sínum viðureignum í fyrstu umferð á Evrópumóti landsliða sem hófst í dag í Gautaborg í Svíþjóð. Karlaliðið tapaði 0,5-3,5 fyrir Aserbaídsjan og var Hannes Hlífar Stefánsson sá eini sem náði jafntefli en hann tefldi við Teimor Radjabov. Kvennaliðið tapaði 1-3 fyrir Rúmeníu þar sem Lenka Ptácníková og Guðlaug Þorsteinsdóttir gerðu jafntefli.

Meira

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 19:45

Einn með allar lottótölur réttar

Einn var með allar lottótölurnar réttar í kvöld og fékk 6,6 milljónir króna að launum. Einn var með fjórar tölur réttar auk bónustölu og fær 340 þúsund krónur. Lottótölurnar voru 6, 10, 22, 34 og 38 og bónustalan var 1. Jókertölurnar voru 0 - 4 - 7 - 7 - 6.

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 17:48

Mannamót fóru vel fram á landinu í dag

Frá Neistafluginu í Neskaupstað.

Mannamót hafa farið vel fram á landinu í dag samkvæmt upplýsingum mótstjóra á stærstu hátíðunum. Talið er að um sjö þúsund gestir séu staddir í Vík í Mýrdal í miklu blíðskaparveðri og á Bindindismótinu í Galtalæk eru um 3.000 manns í góðu veðri.

Meira

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 16:20

Ein líkamsárás og tólf fíkniefnamál í Eyjum

Tólf fíkniefnamál hafa komið upp á fyrsta sólarhring Þjóðhátíðarinnar í Vestmannaeyjum. Samkvæmt því sem fram kemur á Lögregluvefnum er í flestum tilfellum um neysluskammta að ræða. Þá hefur ein líkamsárás verið kærð í Vestmannaeyjum og einn hefur verið tekin fyrir meintan ölvunarakstur.

Meira

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 16:13

Erlendir ferðamenn slösuðust í bílveltu við Súðavík

Bílvelta varð í nágrenni Súðavíkur um klukkan hálf fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Ísafirði voru tveir erlendir ferðamenn í bílnum og voru þeir fluttir á súkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar. Nánari upplýsingar um líðan þeirra liggja ekki fyrir en fólkið er þó ekki talið mjög alvarlega slasað.

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 15:38

„Með bestu föstudögum á þjóðhátíð í Eyjum”

Það var mikil stemning í Í brekkunni í Herjólfsdal í gærkvöldi.

Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum hefur gengið sérlega vel fram að þessu og segir Birgir Guðjónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, gærdaginn hafa verið með bestu föstudögum á þjóðhátíð sem hann muni eftir. „Veðið lék náttúrulega við okkur í gær og í gærkvöldi voru átta til níu þúsund manns í brekkunni," segir hann.

Meira

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 15:23

Mikil og góð fjölskyldustemning á Akureyri

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu á Akureyri hefur gengið mjög vel samkvæmt upplýsingum Braga Bergmann, talsmanns hátíðarinnar. „Það er glampandi sól og hátt í tuttugu stiga hiti og það eru bara allir mjög hamingjusamir," sagði hann í samtali við blaðamann fréttavefjar Morgunblaðsins í dag.

Meira

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 15:07

„Umferðin virðist hafa dreifst á fleiri daga en undanfarin ár"

Umferð út úr Reykjavík

Óvenjulítil umferð hefur verið á þjóðvegum landsins í dag miðað við verslunarmannahelgar undanfarinna tveggja ára samkvæmt upplýsingum Jóhanns k. Jóhannssonar, umferðarfulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu. Þá sagði hann flest benda til þess að umferðin frá höfuðborgarsvæðinu hefði dreifst á fleiri daga en undanfarin ár og að boðuð mótmæli atvinnubílstjóra hafi hugsanlega orðið til þess að fólk legði fyrr af stað.

Meira

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 9:36

Hlaup í Skaftá á ekki að hafa nein áhrif á umferð

Engir vatnavextir eru merkjanlegir í Skaftá niður við þjóðveginn, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Vík í Mýrdal. Þá hefur engin lykt fyndist í byggð enda mældust litlar hræringar í kring um Skaftárketil í morgun. Þá segir lögregla að jafnvel þótt stórt hlaup verði í ánni eigi það ekki að hafa nein áhrif á fólk á svæðinu eða umferð um það.

Meira

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 9:18

Sólríkast á Norðaustur- og Austurlandi

Veðurstofan spáir suðaustan 8-13 m/s og dálítilli rigningu suðvestan- og vestanlands í dag, en hægari vindi og björtu veðri á Norðaustur- og Austurlandi. Í kvöld er gert ráð fyrir að vind lægi suðvestan og vestanlands og að þá verði úrkomuminna. Hiti verður 10 til 20 stig, hlýjast norðaustantil.

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 9:12

Mildi að ekki urðu alvarleg meiðsl í vinnuslysi á Sultartanga

Mikil mildi þykir að alvarleg slys urðu ekki á fólki er krani valt á hliðina á Sultartanga í gærmorgun. Kranastjóranum tókst að stökkva út úr krananum og verkstjóri kallaði til starfsmanna, sem voru á svæðinu, að forða sér.

Meira

Innlent | mbl.is | 30.7.2005 | 9:01

Skemmtanahald fór friðsamlega fram

Frá Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær.

Skemmtanahald fór friðsamlega fram víðast hvar á landinu í nótt samkvæmt upplýsingum lögreglu. Á Akureyri komu upp fjögur minniháttar fíkniefnamál auk þess sem 12 ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur. Þar af var einn á 166 km hraða. Í Vestmannaeyjum komu upp tvö minniháttar fíkniefnamál auk þess sem örfáir aðilar gistu fangageymslur lögreglu á meðan þeir sváfu úr sér mestu ölvunarvímuna. Mjög rólegt var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt

Innlent | Morgunbl. | 30.7.2005 | 5:30

Stefnir í metár hjá Norrænu

Útlit er fyrir að árið í ár verði besta ár Norrænu, en 30 ár eru liðin frá því að skip undir þessu nafni hóf siglingar til Íslands. Mjög vel hefur gengið að selja farmiða með ferjunni að sögn Jónasar Hallgrímssonar, framkvæmdastjóra Austfars á Seyðisfirði.<

Meira

Innlent | Morgunbl. | 30.7.2005 | 5:30

Yfir ellefu þúsund bílar fóru um Suðurlandsveg í gær

Umferðin var mest um Suðurlandsveg við Sandskeið í gær, skv. upplýsingum frá Vegagerðinni, en seint í gærkvöld höfðu yfir ellefu þúsund bílar farið þar um síðasta sólarhringinn.

Meira

Innlent | Morgunbl. | 30.7.2005 | 5:30

Vandræði á hjúkrunarheimilum vegna nýs leiðakerfis strætó

Dagbjört Þyrí Þorvarðardóttir, hjúkrunarforstjóri á Hrafnistu, segir að stjórnendur Hrafnistu hafi þurft að skipuleggja leigubílaferðir fyrir starfsfólk út um alla borg eftir að nýtt leiðakerfi strætó var tekið í notkun, þar sem vagnarnir ganga ekki í úthverfin eftir ellefu á kvöldin.

Meira

Innlent | Morgunbl. | 30.7.2005 | 5:30

2.100 sóttu um byggingarrétt í Þingahverfi í Kópavogi

Bæjarráð Kópavogs hefur úthlutað byggingarrétti í Þingahverfi, nýju hverfi á Vatnsenda. Um er að ræða rétt til að byggja á 75 einbýlishúsalóðum, 38 parhúsalóðum og lóðum fyrir 106 íbúðir í raðhúsum, fjölbýli og svokölluðum klösum. Lóðirnar voru afar umsetnar og bárust alls 2300 umsóknir frá 2100 aðilum.

Meira

Innlent | Morgunbl. | 30.7.2005 | 5:30

Karlmenn virkja karlmenn gegn nauðgunum

Karlahópur Femínistafélagsins stendur nú fyrir aðgerðum í kringum verslunarmannahelgina til að efla samstöðu karlmanna gegn nauðgunum þriðja árið í röð.

Meira

Innlent | Morgunbl. | 30.7.2005 | 5:30

Sex börn undir tveggja ára aldri nærri drukknuð í ár

Tveggja ára drengur var hætt kominn er hann féll ofan í um eins metra djúpa sundlaug við heimili sitt í Mosfellsbæ í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík kom faðir drengsins honum til bjargar í tæka tíð en drengurinn var fluttur á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins til aðhlynningar í kjölfarið og er líðan hans stöðug

Meira

Innlent | Morgunbl. | 30.7.2005 | 5:30

Jónas hættir hjá Austfari

Jónas Hallgrímsson hættir um mánaðamótin sem framkvæmdastjóri Austfars á Seyðisfirði. Síðasti starfsdagur hans var í gær en á mánudag tekur Jóhann Jónsson við stöðu Jónasar.

Meira

Innlent | Morgunbl. | 30.7.2005 | 5:30

Skaftárhlaup líklega hafið

Flest bendir til að hlaup sé að hefjast í Skaftá. Í gærkvöldi höfðu í um sólarhring sést óróapúlsar á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar á Grímsfjalli og Skrokköldu. Því valda svonefndir ísskjálftar í vestanverðum Vatnajökli.

Meira

Innlent | Morgunbl. | 30.7.2005 | 5:30

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í opinberri heimsókn í Kanada

„Okkur Sigurjónu líður eins og heima," sagði Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, í hádegisverðarboði hjá John Harvard, fylkisstjóra Manitoba í Kanada, í gær og lýsti yfir ánægju með að vera kominn til Winnipeg í þriðja sinn.

Meira

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 22:37

Harður árekstur við Síká í Hrútafirði

Af vettvangi óhappsins við Síká í Hrútafirði.

Harður árekstur varð við brúnna yfir Síká í Hrútafirði um eittleytið í dag þegar fólksbíll ók aftan á jeppa. Talið er að jeppinn hafi stöðvað við brúnna til að hleypa umferð yfir brúnna, sem er einbreið, þegar bíllinn ók aftan á hann. Báðir bílarnir skemmdust nokkuð, fólksbíllinn þó sýnu meira. Farþegar fólksbílsins hlutu minniháttar meiðsli en þau eru ekki talin alvarleg.

Meira

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 22:10

Hörkustemmning á Síldarævintýri á Siglufirði

Talið er að á milli 3000 til 3500 manns séu mættir í Síldarævintýrið á Siglufirði. Hátíðin hófst í gær með tónleikum og knattspyrnukeppni en var sett með formlegum hætti klukkan 16 í dag. Elías Bjarni Ísfjörð, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir veður með besta móti og geta vart verið betra.

Meira

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 22:07

Líklegt að hlaup sé að hefjast í Skaftá

Frá því klukkan 10 í gærkvöldi hafa mælst óróapúlsar á jarðskjálftamælum Veðurstofu Íslands á Grímsfjalli og Skrokköldu. Bendir allt til að vatn úr Skaftárkatli sé að brjóta sér leið undan jöklinum og er talið að hlaup sé að hefjast í Skaftá. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er búist við að vatn nái fram að jökulröndinni snemma í fyrramálið. Þegar hefur verið haft samband við Almannavarnir. Lögreglan í Vík í Mýrdal ætlar að kanna svæðið í kvöld og eru menn á vegum Landmælinga á leið til svæðisins.

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 21:49

„Boltinn hjá ráðamönnum þjóðarinnar“

Bílalest atvinnubílstjóra á Hringbraut í dag.

Sturla Jónsson, forsvarsmaður atvinnubílstjóra, sem óku löturhægt eftir stærstu götum borgarinnar í dag, var sæmilega sáttur við aðgerðirnar í dag. Hann segir boltann hjá ráðamönnum þjóðarinnar og vilji hann fá viðbrögð þeirra. Ef ekki verði tekið mark á atvinnubílstjórum sé enn í myndinni að valda töfum á umferð. Sturla segir fjarri að þungaskattur hafi verið lagður af, líkt og fjármálaráðherra haldi fram. Enn séu ökutæki sem séu 10 tonn og þyngri enn með gjaldmæli. Segir hann menn óttast að 5 króna gjald leggist á verð dísilolíu síðar á árinu.

Meira

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 19:40

Mótmælum atvinnubílstjóra lokið

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 19:20

Sól og blíða á Neistaflugi í Neskaupstað

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 18:19

Árekstur á brúnni yfir Laxá á Refasveit

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 17:56

Gengið vel á Akureyri til þessa

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 17:46

2-3 þúsund manns við setningu Þjóðhátíðar

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 17:33

Lögregla vísar atvinnubílstjórum af Suðurlandsvegi

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 16:22

Flutningabílunum ekið áfram um götur borgarinnar

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 15:39

Bílalest atvinnubílstjóra lögð af stað

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 15:29

FÍB með hjálparþjónustu um verslunamannahelgina

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 15:07

Fíkniefni gerð upptæk í Herjólfi

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 14:11

Magnús Kristinsson greiðir hæstu gjöldin í Eyjum

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 13:49

Vörubílar safnast saman í Vesturbænum

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 11:42

Félag hópferðaleyfishafa tengist ekki mótmælum

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 11:34

Skemmtiferðaskip leggst að bryggju í Hafnarfirði

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 11:28

Páll Magnússon skipaður útvarpsstjóri

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 11:15

Frosti Bergsson greiðir mest í Reykjavík

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 11:06

Arngrímur greiðir hæst gjöld á Reykjanesi

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 10:22

Jarðskjálfti á Skjálfandaflóa

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 10:22

Erlingur Helgason greiðir hæst gjöld á Vesturlandi

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 8:07

Nokkur innbrot í Reykjanesbæ

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 8:04

Trylltist þegar honum var vísað úr landi

Innlent | mbl.is | 29.7.2005 | 7:55

Merkt sandlóa sást í Frakklandi

Innlent | Morgunbl. | 29.7.2005 | 5:30

Hátíðagestir fyrr á ferðinni í Eyjum

Innlent | Morgunbl. | 29.7.2005 | 5:30

Segir Friðrik Þór Guðmundsson hafa brotið trúnað

Innlent | Morgunbl. | 29.7.2005 | 5:30

Áfram prýðisveiði í Þverá og Kjarrá

Innlent | Morgunbl. | 29.7.2005 | 5:30

Deilt um löggæslukostnað í Vestmannaeyjum

Innlent | Morgunbl. | 29.7.2005 | 5:30

FARICE-1 sæstrengurinn hefur bilað átta sinnum í ár

Innlent | Morgunbl. | 29.7.2005 | 5:30

Um þrjú þúsund manns mættir í Vík

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 22:26

Sex stöðvaðir fyrir of hraðan akstur við Skaftafell

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 20:44

TF-SIF leitaði báts sem tilkynnti sig ekki

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 18:10

Eldur í húsi á Selfossi

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 18:08

50 þúsund ókeypis smokkum dreift

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 17:52

Enginn flöskuháls á Vesturlandsvegi

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 17:35

Eldur í Dugguvogi

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 17:26

Lokað fyrir eldsneyti Keflavíkurflugvallar?

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 17:18

Bíll fór út af veginum undir Hafnarfjalli

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 17:03

Sprengikúla fannst í vegarkanti í Eyjafirði

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 16:28

Hátíðargestir minntir á atriði helgarinnar

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 16:03

Festu bíl sinn í straumþungri á

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 15:06

Fjármálaráðherra sáttur við söluverð Símans

Innlent | Bæjarins besta | 28.7.2005 | 12:14

Guðbjörg ÍS seld til Bolungarvíkur

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 12:04

HM ungmenna í skák lokið

Innlent | mbl.is | 28.7.2005 | 12:01

VG mótmælir vinnubrögðum við sölu Símans

Innlent | Bæjarins besta | 28.7.2005 | 9:00

Einbýlishús reist á einum sólarhring

Innlent | Morgunbl. | 28.7.2005 | 5:30

Átta skákir og 6½ vinningur