Ljónið (23. júlí - 22. ágúst)
Barn í Ljóninu Konungurinn í frumskóginum er mættur
og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi
við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli
(við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!)
og vill láta taka eftir sér og láta dást
að sér. Það getur verið mikil vinna að
eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm
og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt
er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en
ef það er óánægt öskrar það
og lætur öllum illum látum. Heimilislífið
kemur til með að snúast mikið í kringum
kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur
og frekur. Það þýðir ekki að segja
ljóninu að læðast meðfram veggjum því
slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til
annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg
ákveðni er það sem dugar best. Ljónið
er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða
þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði
og því er gott að fela því snemma ábyrgð.
Mikilvægt er að kenna því að taka tillit
til annarra. Það þarf að taka tillit til þess
í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því
athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því
þegar það hefur gert eitthvað jákvætt. |
Ljónið Í miðju Opin tjáning Fast fyrir Stórtækt Skapandi sjálfstjáning Hugsjónir Heiðarleiki Þegar talað er um 'Ljónið' og 'Ljón', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Ljónsmerkinu. Þeir einstaklingar sem fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna. Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar,
staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti,
Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða
Miðhimins um (þjóðfélags)markmið.
Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og
þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað
um stjörnumerkin. Tekið af http://www.mbl.is/mm/stjornuspeki/ |
|