Vorum að borða kvöldmatinn og Rósa hélt
á Halldóru Mjöll. Rósa segir við Tryggva að
hann sé rosalega duglegur að borða en Halldóra Mjöll
geti ekki borðað neitt því að hún hafi ekki
neinar tennur. Segir þá okkar maður: "Babbi
kaupa tennur lillu Haddou Möll"
Við sama kvöldverð: Tryggvi Snær talar mjög mikið
og þykir okkur stundum nóg um. Hann þagnar aldrei og vorum
við búinn að biðja hann um að tala aðeins minna
á meðan hann borðaði (kölluðum hann "Masa").
Tryggvi þegir óvenju lengi (ca.10 sekundur) en segir þá:
"Giggi talar mikið".
Tryggvi Snær var að horfa á barnatímann í
sjónvarpinu. Við (Hóddi og Rósa) vorum að taka
til kvöldmatinn en maturinn ekki kominn á borðið þegar
þegar Rósa segir Tryggva að koma að borða. Okkar
maður lætur ekki segja sér það tvisvar og hleypur
inní eldhús og sér að það er enginn matur
kominn á borðið og segir: "Enginn matur til
!"
Stína og Einar sendu Tryggva Snæ og Halldóru Mjöll
pakka frá Danmörku sem voru svaka fín föt. Pósturinn
kom með pakkann um það leiti sem Tryggvi var að fara að
sofa þannig að það lá beinast við að hann
mátaði fötin strax (enda fatasjúkur drengurinn). Það
gekk svo ekki þrautalaust að fá hann úr fötunum
aftur og það endaði með því að hann fór
uppí rúmið sitt og fór að sofa, í fötunum!
Húfa, þykk peysa og þykkir vettlingar.
Búið er að vera kalt í veðri undanfarna daga og
okkar maður talar oft um að það sé ískalt
og puttarnir séu ískaldir á sér
eða Halldóru Mjöll. Eitt kvöldið þegar að
pabbi hans var að tannbursta hann fyrir svefninn ætlaði Tryggvi
að þvo sér um hendurnar líka og skrúfar frá
vatskrananum og er vatnið þá frekar heitt fyrir hann: Þá
segir hann: "Óóóó vattið ísheitt"
!
Nóvember 2005
Vorum að tala um hárlit á fólki og segja að
þessi og hinn væri með ljóst eða dökkt hár.
Eftir smá tíma segir Tryggvi Snær: " Haddóa
Möll er með dimmt hár".
Jólaundirbúningur
Höfðum verið að taka niður jóladótið
ofan af lofti og sortera og henda því sem verður ekki notað
meir. Tryggvi Snær var að sjálfsögðu aðalmaðurinn
í að skoða skrautið og þar var jóla þetta
og jóla hitt. Svo kom að jóla trénu, þá
hrópaði okkar maður " váááá,
Jólaskrautablóm"
Vorum inn á Glerártorgi og voru þar jólasveinar
að skemmta smáfólkinu. Einn jólasveinninn gaf Tryggva
Snæ blöðru og nammi. Svo var Tryggvi að segja frá
þessu sagði hann að "jólaskrautið gaf
Gigga blöruru og nammi"
Í sama skipti þegar jólasveinninn var búinn að
gefa honum herlegheitinn og var farinn í burtu snýr Tryggvi
Snær sér að pabba sínum og segir: "Hann
er ljótur þessi !"